Við erum sætustu systkyni í heiminum

Við heitum Birkir Þór og Erna Alexandra og erum Guðjóns og Thelmu börn.

Færslur: 2006 Júlí

06.07.2006 20:43

Birkir Þór Guðjónsson

Birkir Þór er fæddur 7 mars 2004 klukkan 17:36 á Landspítalanum í reykjavík. Hann vóg 3535gr og var 51cm á lengd. Hann var með mikið dökkt hár og grá augu.Í dag er hann ennþá jafn hárfagur og er með alveg ljóst hár og mjög svo brún augu. Frá fæðingu hefur Birkir alltaf verið talinn voðalega líkur pabba sínum og það fer ekki á milli mála að þeir séu feðgar

Það var ekki mikið fyrir Birki haft í fæðingunni og tók það einungis 36min að fæða hann og var hann alveg stálhraustur og fínn. Hann hefur alltaf verið mjög hraustur fyrir utan vott af heilahimnubólgu sem að hann fékk rétt að verða 19 mánaða gamall.

Hann er mjög hraustur í dag og það er ekki að sjá að hann hafi lent í þessari leiðindarveiru.

 

Birkir Þór er mjög ákveðin en samt afar ljúfur strákur. Hann veit alveg hvað hann vill og getur orgað og orgað en hættir svo um leið þar sem að hann veit að það þýðir ekkiJ Hann er alveg rosalega ljúfur og er rosalega góður við alla. Honum þykir rosalega vænt um alla og llætur fólk sko alveg vita af því. Systir hans hún Erna Alexandra er númer 1# hjá honum. Honum þykir svo ofsalega vænt um hana. Hann er líka rosalega mikill pabba strákur og auðvitað mömmu strákur líkaJ En pabbi er sko alger töffari að birkirs mati. Svo er hann líka rosalega mikill ömmu og afa kall.

 

Birkir Þór er farinn að tala rosalega mikið og setja í setningar og þá sérstaklega eftir að hann byrjaði á leikskólanum sínum á kisudeild á Víðivöllum. Það er alger óþarfi að nefna öll orðin sem að hann segir þar sem að hann segir nánast allt.

Hann hefur alltaf verið voðalega fljótur að öllu hann byrjaði að sitja um 4 og ½ mánaða, skríða rétt um 5 mánaða, labba með rétt um 6 mánaða og þar af leiðandi var allt tætt um leið á öllum borðum og því sem að hann komst íJ

Hann byrjaði ekki að labba fyrr en um 14 mánaða en við teljum hann hafa afsökun fyrir því þar sem að hann átti sparkbíl sem að hann notaði endalaust á hverjum einasta degi frá um 9 og ½ mánaða aldurinn. En um leið og við tókum okkur til og settum bílinn upp á borð í einn dag þá ákvað minn bara að fara að labba sjálfurJ

 

Það er misjafnt hversu duglegur hann Birkir Þór er að borða. Stundum getur hann borðað og borðað en stundum hefur hann tekið upp á því að borða sem minnst. Hann er líka agalega duglegur við það að finna sér eitthvað á milli mála þegar að hann kemt í það (eins og t.d. afa skúffuJ) En á leikskólanum þá segja þær að hann borði yfirleitt voðalega vel fyrrparinn en ekki eins vel þann seinni. Þa þannig að þetta virðist bara vera hans prógram að borða vel á morgnana og í hádeginuJ

 

Birkir byrjaði hjá dagmömmnu rúmlega 25 mánaða gamall eða semsagt í júní 2006.

Honum finnst skemtilegast í heimi að fá að fara að hitta alla krakkana á kisudeild og fara út að leika með krökkunum og syngja. Á morgnana þá lætur hann alltaf mömmu sína vita af því að hann sé að fara að borða og hjóla með krökkunum.

 

Birkir Þór er ekki skrírður í höfuðið á neinum. Þegar að hann fæddist þá var hann með svo sterkan svip sem að hann ber enn þannig að mamma hans og pabbi voru ekki alveg viss hvaða nafn hann ætti að hljóta. Þau vildu að hann fengi eitthvað sterkt nafn þar sem að hann myndi bera það vel. Þannig að þau ákváððu að hann ætti að heita Birkir. En síðan var hann skírður Þór líka þar sem að pabbi hans óskaði eftir því að hann fengi seinna nafnið úr goðafræðinni þar sem að pabbinn á einnig eftirnafn þaðan. Semsagt Ægir. Mamman var voðalega sammála og fannst það passa vel við hann.

 

Fleir sniðugar fréttir af Birki sem að gerast út frá þessum skrifum koma undir linknum Birkirs Þórs blogg.

03.07.2006 15:35

Erna Alexandra Guðjónsdóttir

Erna Alexandra Guðjónsdóttir er fædd 07.10.05 klukkan 03:12 að nóttu til. Hún vóg 3410gr og var 50 cm á lengd. Hún var með blá augu og dökk brúnt mikið hár. Það var svo lítið fyrir henni haft í fæðingunni að hún koma út í einum rembing alveg stálhraust og fín. Enn í dag er hún stálhraust og fín og hefur ekki fengið eina einustu pest nema örlítinn hita í smá stund vegna tanntöku sem að leið hratt yfir.

Erna Alexandra er rosalega ákveðin og veit alveg hvað hún vil en það sem að tekur völdin yfir ákveðninni er það hversu glöð hún er alltaf. Hún er alltaf sí brosandi og rsoalega ánægð ef bara einhver vill taka hana og tala við hana í smá stund. Birkir Þór er sko númer 1# hjá henni. Alltaf þegar að hún sér Birkir Þá ljómast allt upp og hún fer að hoppa og skríkja af kæti. 

Erna er voðalega dugleg að apa orð upp eftir öðrum. Núna er hún rétt að verða 9 mánaða og segir mama=mamma, dada=pabba, hetur=hestur, datt/detta=datt/detta, namm=namm og svo kemur alltaf meira og meira upp úr henni ef að bara er sagt það við hana nógu oft(",)

Hún er farin að skríða og tæta allt upp(reyndar dágóður tími sem að það byrjaði) og svo stendur hún upp með öllu og er alveg sama þótt hún detti og meiði sig. Hún veður samt alltaf aftur beint í það. Það er nefnielga munurinn á systkynunum að Birkir hefur alltaf verið svo passa samur að hann hefur bakkað niður tröppur og úr sófa frá því að hann var um 5 mánaða. En Erna er akkurat ekki þannig. Heldur lætur hún allt vaða og tekur áhætturnar bara svona til gamans og að fá að prufa aðeins(",)

Erna er þvert á móti því að vera matvönd og er bókstaflega gott viðmið við það hvað er í raun og veru að vera botnlaus. Þá er átt við að hún borðar og borðar allt sem að kemst nálægt munni hennar og borðar liggur við þangað til að allt kemur bara upp aftur sem að hafði ekki pláss. Já þetta er svona nánast að vera bontlaus. Þegar að verið að er mata hana þá má aðilinn alls ekki líta undan heldur bara skófla og skófla og skófla upp í hana. Þrátt fyrir að Erna sé agalega forvitin þá hefur hún nánast alltaf tíma í að borða. Enda er hún alltaf sátt sé hún södd og vel hvíld. Bara svona eins og draumabörn eru talin vera. Það er lítið hægt um að segja hvað er uppáhalds matur Ernu? Það er nánast allt saman. Stundum sér maður smá svipbrigði að þetta sé ekki alveg nógu gott. En hún lætur sig alveg hafa það og klárar matinn þrátt fyrir það. Erna var á brjósti til 6 mánaða.

5 mánaða byrjaði Erna hjá dagmömmu. Hún heitir Hugrún og Ernu finnst rosalega gaman hjá henni. Mamma keyrir hana alltaf þangað þegar að hún fer í skólann og sækir svo um leið og hún er búin í skólanum sem að er yfirleitt um 16:30.

Erna Alexandra er ekki algerlega skírð út í bláinn. Hún fær nafnið Erna frá móðurömmu sinni. Hún mun bera þetta nafn alveg þar sem að hún líkist ömmu sinni á margan máta. Hvað sem varðar skap og einnig útlitslega líka. Skírnarathöfnin fór fram í Sævargörðum hjá Gunnhildi frænku þann 21 nóvember 2005. Hún skírðist á afmælisdegi Hildar ömmu og 25 ára afmælisdegi pabba síns. Séra Sigurður Helgason skírði Ernu Alexöndru og Hildur amma og Gunnhildur eru skírnavottar.

Í dag er Erna Alexandra með mikið ljós-skolleitt hár og er móeygð. Semsagt voðaelga erfitt að segja til um augnlitinn hennar þar sem að hann getur verið ýmiskonar á litinn frá gráum út í brúnt. Hún er með tvær litlar sætar beittar tennur í neðri góm og er að sjálfsögðu fallegust í heiminum og geiminum.

Fleiri sniðugar fréttir af Ernu sem að gerast út frá þessum skrifum af koma undir linknum Ernu Alexöndru blogg.

 

  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 6063
Samtals gestir: 3258
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:58:20

Eldra efni

Tenglar